Oddný Elín Magnadóttir, húsfrú á Kambsvegi, segir fjölskyldu sína fólk hefða. Í takt við það hefur hún í tólf ár haft grafna rjúpu í forrétt á aðfangadagskvöld.
Auk grafinnar rjúpu í forrétt samanstendur jólamáltíðin af rjúpu, framreiddri á gamaldags máta, og ananasfrómas í eftirrétt.
Uppskriftirnar má sjá neðar í greininni. Mmmm...„Við erum ekki mikið fyrir að breyta og erum fastheldin á alls kyns hefðir. Ég hef bara einu sinni breytt út af vananum með eftirréttinn; eyddi heilum degi í að gera Ris a la mande með sósu og öllu og eyðilagði jólin fyrir eiginmanninum og mömmu hans. Það var ekki reynt aftur," segir Oddný.
Uppskriftina að gröfnu rjúpunni segir Oddný einnig mjög góða í að grafa gæsabringur og hreindýrafillet.
Slíkt hafi hún gert fyrir stærri veislur og alltaf sé það jafn vinsælt. Gott er að bera forréttinn fram með ristuðu brauði. - jma