Körfubolti

KR-ingar áfram ósigraðir á árinu 2011 - unnu á Króknum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Marcus Walker átti stórleik á Króknum.
Marcus Walker átti stórleik á Króknum. Mynd/Daníel
Marcus Walker átti stórleik þegar nýkrýndir bikarmeistarar KR-inga fóru á Krókinn og unnu ellefta sigurinn í röð á árinu 2011. KR vann leikinn 85-82 en þurfti að hafa mikið fyrir sigrinum á móti heimamönnum í Tindastól. Walker skoraði 38 stig í leiknum og hitti úr 65 prósent skota sinna (15 af 23).

KR-ingar minnkuðu forskot Snæfells á toppnum í tvö stig á nýjan leik með þessum sigri en Snæfellingar unnu Hauka í gærkvöldi. KR hefur unnið alla ellefu leiki sína á árinu 2011, átta í deild og þrjá í bikar.

Walker var eins og áður sagði með 38 stig en næstu í stigaskorun hjá KR var Brynjar Þór Björnsson með 14 stig. Pavel Ermolinskij lét sér næga að skora 3 stig og gefa bara 5 stoðsendingar í kvöld.

Hayward Fain skoraði 33 stig fyrir Tindastól, Sean Cunningham var með 18 stig (14 í fyrri hálfleik) og Helgi Rafn Viggósson skoraði 12 stig.

Tindastólsmenn voru með frumkvæðið framan af, voru 25-22 yfir eftir fyrsta leikhluta og náðu mest sjö stiga forskoti í öðrum leikhluta, 41-34. KR náði hinsvegar að minnka muninn í 49-48 fyrir hálfleik og Marcus Walker hóf síðan seinni hálfleikinn á því að setja niður tvo þrista með stuttu millibili og koma KR fimm stigum yfir.

KR vann þriðja leikhlutann 22-14 og var með sjö stiga forskot eftir hann, 70-63. Walker skoraði 10 stig í leikhlutanum og var þá komin með 27 stig í leiknum.

Tindastóll skoraði níu fyrstu stigin í fjórða leikhluta og komst yfir í 72-70 en frábær sprettur KR brerytti stöðunni úr 74-72 í 74-81 og lagði grunninn að sigrinum. Walker skoraði 7 af þessum níu stigum og það er óhætt að segja að hann hafi haldið sínum mönnum á floti í kvöld.

Tindastóll-KR 82-85 (25-22, 24-26, 14-22, 19-15)Stig Tindastólls: Hayward Fain  33/8 fráköst, Sean Kingsley Cunningham 18/4 fráköst, Helgi Rafn Viggósson 12/5 fráköst/6 stolnir, Friðrik Hreinsson 9/6 fráköst, Svavar Atli Birgisson 7/4 fráköst, Dragoljub Kitanovic 3.

Stig KR: Marcus  Walker 38, Brynjar Þór Björnsson 14/5 stoðsendingar, Fannar Ólafsson 8/5 fráköst, Finnur Atli Magnússon 8, Hreggviður Magnússon 7, Pavel Ermolinskij 3/7 fráköst/5 stoðsendingar, Skarphéðinn Freyr Ingason 3, Jón Orri Kristjánsson 2, Ágúst  Angantýsson 2.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×