Davíð Páll fékk lengra bann en Darko Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. mars 2011 15:11 Davíð Páll Hermannsson. Mynd/Arnþór
Aga- og úrskurðanefnd hefur tekið fyrir slagsmálin sem urðu í leik Hauka og KFÍ í lokaumferð Iceland Express deildar karla á fimmtudaginn var. Þrír leikmenn fá leikbönn en fimm leikmenn fá aðeins áminningu. Haukamaðurinn Davíð Páll Hermannsson fær þyngstu refsinguna eða þrjá leiki eða einum leik meira en Darko Milosevic hjá KFÍ. Upphaf atviksins má rekja til viðskipta þeirra tveggja en Davíð Páll fær engu að síður einum leik meira í bann. Nebojsa Knezevic hjá KFÍ fær síðan eins leiks bann fyrir sín afskipti af slagsmálunum. Carl Josey og Ingvar Viktorsson hjá KFÍ og Haukamennirnir Gerald Robinson, Óskar Magnússon og Steinar Aronsson sleppa hinsvegar allir með áminningu. Þeir hlupu allir inn á völlinn til að skilja á milli þeirra Darko og Davíðs Páls. Niðurstaða Aga- og úrskurðanefndar KKÍ:Agamál nr. 16/2010-2011 „Hinn kærði, Davíð Páll Hermannsson, skal sæta þriggja leikja banni vegna háttsemi sinnar í leik Hauka og KFÍ í Iceland Express deild karla sem leikinn var 10. mars 2011". „Hinn kærði, Darco Milosevic, skal sæta tveggja leikja banni vegna háttsemi sinnar í leik Hauka og KFÍ í Iceland Express deild karla sem leikinn var 10. mars 2011". „Hinn kærði, Nebojsa Knezevic, skal sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Hauka og KFÍ í Iceland Express deild karla sem leikinn var 10. mars 2011". Carl Josey, Gerald Robinson, Ingvar Viktorsson, Óskar Magnússon og Steinar Aronsson hlutu sömu úrskurðarorð: „Hinn kærði skal sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Hauka og KFÍ í Iceland Express deild karla sem leikinn var 10. mars 2011".
Dominos-deild karla Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira