Jón Ólafur og Hrafn kosnir bestir í seinni hlutanum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. mars 2011 14:51 Verðlaunarhafar ásamt Hannesi S. Jónssyni, formanni KKÍ og Matthíasi Ímsland,framkvæmdastjóra Iceland Express. Mynd/ÓskarÓ
Jón Ólafur Jónsson, leikmaður Snæfells, og Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, voru í dag kostnir bestir í umferðum 12 til 22 í Iceland Express deild karla. Valið var tilkynnt á blaðamannafundi hjá KKÍ en þá kom einnig í ljóst hverjir voru valdir í fimm manna úrvalslið. Jón Ólafur Jónsson var með 20,6 stig og 10,1 frákast að meðaltali í leik og hjálpaði Snæfelli að tryggja sér deildarmeistaratitilinn í seinni hlutanum. Aðrir í úrvalsliðinu voru liðsfélagi Jón Ólafs hjá Snæfelli, Pálmi Freyr Sigurgeirsson, KR-ingarnir Pavel Ermolinskij og Marcus Walker og Keflvíkingurinn Sigurður Gunnar Þorsteinsson. Pavel og Jón Ólafur voru báðir í úrvalsliðinu fyrir fyrri hlutann en Pavel var þá kosinn besti leikmaðurinn. Hrafn Kristjánsson stýrði KR til sigurs í 9 af 11 deildarleikjum eftir áramót auk þess að KR tryggði sér bikarmeistaratitilinn í fyrsta sinn í tuttugu ár. Hann var valinn besti þjálfarinn en Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, hafði fengið þessi verðlaun fyrir fyrri hlutann. Tindastólsmaðurinn Helgi Rafn Viggósson var kosinn mesti dugnaðarforkurinn í deildinni og besti dómarinn var valinn Njarðvíkingurinn Sigmundur Már Herbertsson alveg eins og í fyrri hlutanum. ´ Verðlaunin fyrir seinni hlutann:Úrvalslið Iceland Express-deildar karla í umferðum 12-22 Pavel Ermolinskij · KR Marcus Walker · KR Pálmi Freyr Sigurgeirsson · Snæfell Jón Ólafur Jónsson · Snæfell Sigurður Gunnar Þorsteinsson · KeflavíkDugnaðarforkurinn Helgi Rafn Viggósson · TindastólBesti þjálfarinn Hrafn Kristjánsson · KRBesti leikmaðurinn Jón Ólafur Jónsson · SnæfellBesti dómarinn í Iceland Express-deildum Sigmundur Már Herbertsson
Dominos-deild karla Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira