Körfubolti

Þorleifur spilar með Grindavík - Bradford einbeittur í upphitun

Henry Birgir Gunnarsson í Röstinni skrifar
Það er allt að verða klárt fyrir oddaleikinn í Grindavík þar sem Stjarnan sækir Grindavík heim. Heimamenn sem komnir eru í salinn glöddust mjög er þeir sáu að Þorleifur Ólafsson er að hita upp með Grindvíkingum.

Hann æfði með Grindavíkurliðinu í gær og er nokkuð góður að sögn Helga Jónasar Guðfinnssonar, þjálfara Grindavíkur.

Helgi Jónas sagðist vonast til þess að geta notað Þorleif í svona 15 mínútur í kvöld.

Í myndskeiðinu hér að ofan má sjá einbeittan Nick Bradford hita upp ásamt öðrum í Grindavíkurliðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×