ÍR-ingar búnir að tapa átta leikjum í röð í úrslitakeppninni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. mars 2011 17:45 Kelly Biedler. Mynd/Arnþór
ÍR og Keflavík mætast í kvöld í Seljaskóla í öðrum leik einvígis þeirra í átta liða úrslitum Iceland Express deild karla í körfubolta. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð Sport 2 en Keflavík tryggir sér sæti í undanúrslitunum með sigri. Þetta verður fyrsti leikur ÍR-inga í úrslitakeppni á nýja parketinu sínu í Seljaskóla en ÍR-liðið hefur verið í miklum ham þar undanfarið. Liðið er búið að vinna fimm síðustu leiki sína í Seljaskólanum eða alla leiki þar síðan Keflvíkingar voru þar síðast 6. janúar og unnu 112-88 sigur. ÍR hefur unnið stórsigra á Grindavík (92-69), Haukum (104-86), Stjörnunni (100-81) og KR (124-96) í síðustu fjórum heimaleikjum sínum en þessa leiki hefur liðið unnið með 22 stigum að meðaltali í leik. ÍR hefur aftur á móti þurft að bíða lengi eftir síðasta sigri í úrslitakeppninni en þeir hafa ekki unnið leik í henni síðan þeir unnu 94-77 sigur á Keflavík í Seljaskóla 9. apríl 2008. ÍR-ingar voru þá einum sigri frá því að komast í lokaúrslitin en í stað þess unnu Keflvíkingar þrjá leiki í röð og komust í úrslitaeinvígið þar sem þeir sópuðu út Snæfelli og tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn. Síðan þá hefur ÍR-liðið verið tvisvar sinnum sópað út úr úrslitakeppninni og tapaði síðan fyrsta leiknum á móti Keflavík á föstudaginn var. Nú er að sjá hvort ÍR-ingar ná loksins að vinna leik í úrslitakeppninni og tryggja sér oddaleik í Keflavík á miðvikudaginn. Síðustu átta leikir ÍR í úrslitakeppninniUndanúrslit 2008 á móti Keflavík - ÍR vann tvö fyrstu leikina Leikur 3: Keflavík-ÍR 106-73 [-23] Leikur 4: ÍR-Keflavík 79-97 [-18] Leikur 5: Keflavík-ÍR 93-73 [-20]8 liða úrslit 2009 á móti Grindavík Leikur 1: Grindavík-ÍR 112-78 [-34] Leikur 2: ÍR-Grindavík 71-85 [-14]8 liða úrslit 2010 á móti KR Leikur 1: KR-ÍR 98-81 [-17] Leikur 2: ÍR-KR 81-103 [-22]8 liða úrslit 2011 á móti Keflavík Leikur 1: Keflavík-ÍR 115-93 [-22] Leikur 2: ÍR-Keflavík Í kvöld
Dominos-deild karla Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira