Körfubolti

Snæfellingar fá svaka frákastara að norðan

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafur Halldór Torfason og Gunnar Svanlaugsson handsala samninginn.
Ólafur Halldór Torfason og Gunnar Svanlaugsson handsala samninginn. Mynd/Heimasíða Snæfells
Akureyringurinn Ólafur Halldór Torfason skrifaði í dag undir samnning við Snæfell og mun spila með liðinu í Iceland Express deild karla á næsta tímabili. Þetta kemur fram á heimasíðu Snæfells.

Ólafur er 24 ára, 195 cm á hæð og kemur frá Akureyri þar sem hann spilaði með Þórsurum. Á síðasta tímabili var Ólafur með að 14,1 stig, 12,1 frákast og 2,7 stoðsendingar að meðaltali með Þór í 1. deildinni.

Ólafur er hraustur strákur og frábær frákastari en hann spilaði meðal annars ameríska fótbolta þegar hann við nám í Bandaríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×