Golf

Lee Westwood þrífst undir pressu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lee Westwood verður í eldlínunni í næstu viku. Mynd. / Getty Images
Lee Westwood verður í eldlínunni í næstu viku. Mynd. / Getty Images
Kylfingurinn Lee Westwood greinir frá því hvernig hann reynir að notfæra sér þá miklu pressu sem fylgi oft á tíðum í golfinu í ítarlegu viðtali við vefsíðuna pgatour.com, en Westwood er óðum að undirbúa sig fyrir US Masters sem hefst í næstu viku.

„Ég hef ávallt verið mikill keppnismaður. Mér finnst gaman þegar ég þarf að setja niður nokkra metra pútt og næ hreinlega að njóta augnabliksins.

US Masters mótið er eitt af stærstu golfmótum ársins og eðlilega mikill spenna fyrir því. Westwood hefur leik með Luke Donald og Martin Kaymer í holli, en þrímenningarnir leika fyrstu tvo hringina saman.

Kylfingarnir þrír skipa fyrstu þrjú sætin á heimslistanum og því má búast við miklu fjölmiðlafári í kringum þá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×