Golf

Birgir lék á 73 höggum á fyrsta keppnisdegi í Svíþjóð

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Birgir Leifur Hafþórsson.
Birgir Leifur Hafþórsson.
Birgir Leifur Hafþórsson, Íslandsmeistari í golfi karla, lék á einu höggi yfir pari á fyrsta keppnisdegi á áskorendamótaröðinni sem fram fer í Svíþjóð. Birgir lék á 73 höggum en hann hóf leik á 10. braut og fékk fugl á 12. sem var þriðja hola dagsins.



Staðan á mótinu.


Á 13., 16. Og 17. braut tapaði Birgir höggum með því að fá skolla (+1). Hann var því á +2 eftir 9 holur en vann það upp með fuglum (-1) 1. og 6. Braut. Atvinnukylfingurinn fékk skolla á 9. braut sem var lokahola dagsins.

Alls eru 136 kylfingar sem taka þátt og er Birgir í 92. sæti þessa stundina og þarf að leika mun betur á morgun til þess að vera öruggur í gegnum niðurskurðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×