Golf

Golfskóli Birgis Leifs: Sláðu boltann úr torfufari

Kylfingar lenda oft í því að fá ekki góða legu á boltann þrátt fyrir að vera á braut. Birgir Leifur Hafþórsson sýnir í þessum kafla m.a. aðferð til þess að slá boltann úr torfufari.

Atriðið er úr þáttunum Golfskóli Birgis Leifs sem sýndir eru á Stöð 2 sport. Í þáttunum tók Birgir Leifur m.a. fyrir val á golfbúnaði, skipulag við golfleik, mataræði, hugarþjálfun og einbeitingu. Tökur á þáttunum fóru fram á heims­klassa æfingasvæði í Flórída.


Tengdar fréttir

Golfskóli Birgis Leifs: Stöðugleiki í púttunum

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur og Íslandsmeistari í golfi, fer hér yfir jafnvægi í púttum og hvernig hægt er að þjálfa upp gott jafnvægi. Gauti Grétarsson sjúkraþjálfari fer yfir æfingar með Birgi en farið er yfir þessi atriði í þáttunum Golfskóli Birgis Leifs sem sýndir eru á Stöð 2 sport.

Golfskóli Birgis Leifs: Takturinn er mikilvægur

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur og Íslandsmeistari í golfi, fer hér yfir hve mikilvægt það er að vera með góðan takt í golfsveiflunni. Birgir sýnir æfingar sem flestir kylfingar geta nýtt sér en þær eru úr þáttunum Golfskóli Birgis Leifs sem sýndir eru á Stöð 2 sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×