Golf

Íslenska karlandsliðið hefur leik á EM á morgun

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Íslenska karlaliðið er þannig skipað: Guðjón Henning Hilmarsson, Ólafur Björn Loftsson, Alfreð Brynjar Kristinsson, Axel Bóasson, Arnar Freyr Hákonarson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson.
Íslenska karlaliðið er þannig skipað: Guðjón Henning Hilmarsson, Ólafur Björn Loftsson, Alfreð Brynjar Kristinsson, Axel Bóasson, Arnar Freyr Hákonarson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson. Mynd/GSÍ
Íslenska karlalandsliðið í golfi hefur leik á morgun á Evrópumeistaramótinu sem fram fer í Portúgal. Alls eru 20 þjóðir sem eru með keppnisrétt á þessu móti.

Fyrstu tvo keppnisdagana er leikinn höggleikur þar sem að fimm bestu skorin af sex telja hjá hverju landsliði. Að höggleiknum loknum verður liðunum skipt í þrjá riðla eftir skori, lið 1-8 verða í A-riðli, 9-16 fara í B-riðil og 17-20 leika í C-riðli.

Í riðlakeppninni er leikinn holukeppni þar sem að einn fjórmenningur og fjórir tvímenningar.

Í fjórmenning leika tveir úr sama liði einum bolta til skiptis út holuna.

Þeir sem skipa íslenska landsliðið eru:  Axel Bóasson (GK), Alfreð Brynjar Kristinsson (GKG), Arnar Snær Hákonarson (GR), Guðmundur Ágúst Kristjánsson (GR), Ólafur Björn Loftsson (NK) og Guðjón Henning Hilmarsson (GKG) , liðsstjóri er Ragnar Ólafsson og þjálfari er Derreck Moore.

Þjóðirnar sem taka þátt eru:

England

Portúgal

Austurríki

Belgía

Danmörk

Finnland

Þýskaland

Írland

Írland

Ítalía

Holland

Noregur

Rússland

Skotland

Slóvakía

Spánn

Svíþjóð

Sviss

Wales

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×