Körfubolti

Bandaríkjamaður á að fylla skarð Pavels

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Reed í leik með Auburn.
Reed í leik með Auburn.
KR er búið að finna arftaka Pavel Ermolinskij. Sá heitir Dewayne Reed og hann kemur frá Auburn-háskólanum í Bandaríkjunum.

Reed er 185 sentimetrar á hæð og var með 16,2 stig, 2,6 fráköst, 4,3 stoðsendingar og 1,3 stolinn bolta að meðaltali í leik á síðasta ári sínu með skólanum en það var árið 2010.

Það tímabil var hann einnig nefndur til Bob Cousy-verðlaunanna þar sem bestu leikstjórnendurnir í bandaríska háskólaboltanum eru útnefndir.

Pavel samdi við sænska félagið Sundsvall á dögunum og Reed fær það verðuga verkefni að fylla hans skarð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×