Golf

Tvítugur áhugamaður jafnaði við Bjorn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Lewis var í stuði í dag.
Lewis var í stuði í dag.
Hinn tvitugi, enski áhugamaður, Tom Lewis, gerði sér lítið fyrir og jafnaði árangur Danans Thomas Bjorn á opna breska meistaramótinu í golfi í dag.

Lewis lék einnig á 65 höggum og þeir tveir eru jafnir í efsta sæti mótsins.

Lewis átti ótrúlegan endasprett. Fékk fjóra fugla í röð og endaði með því að fá par á 18. holu. Hann fékk samtals sjö fugla og tvo skolla á hringnum.

Miguel Angel Jimenez og Lucas Glover eru enn jafnir í þriðja til fjórða sæti, höggi á eftir Bjorn og Lewis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×