Golf

Stricker tryggði sér sigur með mögnuðu pútti

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Bandaríski kylfingurinn Steve Stricker sýndi snilldartakta á lokaholunnu á John Deere meistaramótinu á PGA mótaröðinni í gær  þar sem hann tryggði sér sigur með mögnuðu pútti fyrir fugli.
Bandaríski kylfingurinn Steve Stricker sýndi snilldartakta á lokaholunnu á John Deere meistaramótinu á PGA mótaröðinni í gær þar sem hann tryggði sér sigur með mögnuðu pútti fyrir fugli. AP
Bandaríski kylfingurinn Steve Stricker sýndi snilldartakta á lokaholunnu á John Deere meistaramótinu á PGA mótaröðinni í gær þar sem hann tryggði sér sigur með mögnuðu pútti fyrir fugli. Þetta er þriðja árið í röð sem Stricker vinnur þetta mót en hann lék samtals á 22 höggum undir pari og er þetta 11. sigur hans á PGA mótaröðinni. Stricker fékk fugl á 17., og 18. braut og var hann einu höggi betri en Kyle Stanley sem var ansi nálægt því að fá fugl á lokaholunni.

Þetta er í 21. sinn í sögu PGA mótaraðarinnar að kylfingur vinnur mót þrjú ár í röð. Tiger Woods, Jack Nicklaus og Arnold Palmer eru á þeim lista.

Stricker lenti í töluverðum vandræðum eftir upphafshöggið á lokaholunni. Boltinn endaði í brautarglompu og sló hann úr erfiðri stöðu með 6-járni rétt yfir flötina. Hann setti síðan niður um 10 metra pútt fyrir sigrinum. Stricker er 44 ára gamall og er þetta annar sigur hans á árinu en hann sigraði á Memorial meistaramótinu í síðasta mánuði.

Stanley tryggði sér keppnisrétt á opna breska meistaramótinu með árangri sínum á mótinu og þurfti hann að hraða sér til Bretlands strax að móti loknu ásamt Stricker. Opna breska meistaramótið hefst á fimmtudaginn á Sandwich vellinum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×