Golf

Ólafía Þórunn með pálmann í höndunum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ólafia Þórunn.
Ólafia Þórunn. mynd/gsimyndir.net
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er með pálmann í höndunum fyrir lokadaginn á Íslandsmótinu í golfi. Ólafía Þórunn lék langbest í dag og fer inn í lokadaginn með þrettán högga forskot.

Ólafía lék á tveim höggum yfir pari í dag og er samtals á parinu. Signý Arnórsdóttir er í öðru sæti á þrettán höggum yfi pari en hún lék á tíu höggum yfir pari í dag.

Tinna Jóhannsdóttir er síðan í þriðja sæti á fimmtán höggum yfir pari en hún lék á níu höggum yfir pari í dag.

Gríðarlegur vindur var á vellinum og lék Ólafía Þórunn algjörlega frábærlega miðað við aðstæður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×