Golf

Ólafía Þórunn að rúlla Íslandsmótinu upp

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. mynd/gsimyndir.net
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er með yfirburðastöðu á Íslandsmótinu í höggleik kvenna. Ólafía Þórunn er samtals á einu höggi undir pari eftir níu holur í dag og er eina konan á undir pari.

Signý Arnórsdóttir er næst á átta höggum yfir pari. Berglind Björnsdóttir og Eygló Myrra Óskarsdóttir eru höggi á eftir Signýju.

Ólafía Þórunn er sem fyrr að leika best í dag eða á einu höggi yfir pari. Aðstæður eru ekki eins góðar og síðustu daga og sést það best á skorinu þar sem flestir kylfingar eru vel yfir parinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×