Golf

Heiðar Davíð: Kominn tími á að sjá almennileg skor

Kolbeinn Tumi Daðason í Leirunni skrifar
Heiðar Davíð Bragason úr GÓ spilaði Leiruna á þremur höggum undir pari í dag. Hann lauk hringnum með fallegu pútti fyrir fugli á 18. holunni.

„Já, þetta var ótrúlega góður birdie. Ég var aldrei á braut eftir drive og annað höggið. Þetta leit ekkert voðalega vel út en þetta reddaðist," sagði Heiðar Davíð.

„Ég er náttúrulega ótrúlega ánægður með skorið. Ég var að skora mjög vel miðað við hvernig ég var að slá. Ég gerði rosalega vel eftir að ég komst inn fyrir 100 metrana. Það hefur alltaf verið minn styrkleiki."

Heiðar Davíð varð Íslandsmeistari í Leirunni árið 2005. Hann segir völlinn allt öðruvísi í dag.

„Þetta er allt annað völlur í dag. Röffið var miklu þéttara og flatirnar mikið harðari. Það var erfitt að slá á pinnann sérstaklega úr þykku röffi. Menn voru í miklum vandræðum með að stöðva boltann á flötunum."

Heiðar Davíð segir völlinn bjóða upp á góð skor.

„Menn vildu setja upp völlinn þannig að það yrði auðvelt að nálgast pinnann og það yrði lágt skor. Maður finnur það þegar maður slær á flatirnar. Maður getur verið rosalega agressívur á pinnann sem er gaman. Það er kominn tími á að sjá almennileg skor á Íslandsmóti," sagði Heiðar Davíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×