Golf

Bara einn hefur unnið Einvígið tvö ár í röð - hvað gerir Birgir Leifur?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Birgir Leifur á mótinu í fyrra.
Birgir Leifur á mótinu í fyrra. Mynd/Daníel
Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins og DHL, Einvígið á Nesinu, verður haldið í 15. sinn á Nesvellinum í dag. Keppendur léku níu holu höggleik  í morgun og klukkan eitt hefst svo Einvígið (shoot-out). Einn kylfingur dettur út á hverri holu, þar til tveir berjast um sigurinn á 18. holu.

Venju samkvæmt var ellefu af bestu kylfingum landsins boðið til leiks. Birgir Leifur Hafþórsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar er sigurvegari síðasta árs og mætir að sjálfsögðu til þess að verja titilinn.

Birgir Leifur getur orðið aðeins annar kylfingurinn í fjórtán ára sögu þessa skemmtilega móts sem nær því að vinna tvö ár í röð. Magnús Lárusson er sá eini sem hefur varið titilinn en hann vann Einvígið þrjú ár í röð frá 2004 til 2006.

Birgir Leifur er annar af tveimur kylfingum á mótinu í ár sem hafa unnið Einvígið áður en hinn er Björgvin Sigurbergsson sem vann Einvígið bæði 2001 og 2009.

Þátttakendur 2011

Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG, Klúbbmeistari GKG

Andri Þór Björnsson, GR, Klúbbmeistari GR

Axel Bóasson, GK, Íslandsmeistari karla í högleik

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, Shoot-out meistari 2010

Björgvin Sigurbergsson, GK, Klúbbmeistari GK

Ingi Rúnar Gíslason, GKJ, Klúbbmeistari GKJ

Karlotta Einarsdóttir, NK, Klúbbmeistari NK

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, Íslandsmeistari kvenna í höggleik og klúbbmeistari GR

Tinna Jóhannsdóttir, GK, Klúbbmeistari GK

Sigurvegarar frá upphafi

1997 - Björgvin Þorsteinsson

1998 - Ólöf María Jónsdóttir

1999 - Vilhjálmur Ingibergsson

2000 - Kristinn Árnason

2001 - Björgvin Sigurbergsson

2002 - Ólafur Már Sigurðsson

2003 - Ragnhildur Sigurðardóttir

2004 - Magnús Lárusson

2005 - Magnús Lárusson

2006 - Magnús Lárusson

2007 - Sigurpáll Geir Sveinsson

2008 - Heiðar Davíð Bragason

2009 - Björgvin Sigurbergsson

2010 - Birgir Leifur Hafþórsson




Fleiri fréttir

Sjá meira


×