Golf

Einvígið á Nesinu á morgun - Birgir Leifur verður með

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Birgir Leifur Hafþórsson vann mótið í fyrra.
Birgir Leifur Hafþórsson vann mótið í fyrra. Mynd/Daníel
Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins og DHL, Einvígið á Nesinu, verður haldið í fimmtánda skipti á Nesvellinum á morgun mánudaginn 1. ágúst. Nesklúbburinn hefur nú tilkynnt um það hverjir verða með í mótinu í ár.

Mótið verður með hefðbundnu sniði, þ.e. klukkan 10.00 leika keppendur 9 holu höggleik og kl. 13.00 hefst svo Einvígið(shoot-out).  Einn kylfingur dettur út á hverri holu, þar til tveir berjast um sigurinn á 18. holu.

Venju samkvæmt er ellefu af bestu kylfingum landsins boðið til leiks.  Birgir Leifur Hafþórsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar er sigurvegari síðasta árs og mætir til þess að verja titilinn.

Birgir Leifur mætir meðal annars nýkrýndum Íslandsmeisturum í höggleik, Axel Bóasyni úr Keili og Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur úr GR.

DHL hefur verið styrktaraðili mótsins frá því að það var fyrst haldið árið 1997 og ávallt styrkt félög eða samtök sem láta sér hag langveikra barna varða.  Í ár er það Barnaspítali Hringsins.

Þátttakendur 2011

Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG - Klúbbmeistari GKG

Andri Þór Björnsson, GR - Klúbbmeistari GR

Axel Bóasson, GK - Íslandsmeistari karla í högleik

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG - Shoot-out meistari 2010

Björgvin Sigurbergsson, GK - Klúbbmeistari GK

Ingi Rúnar Gíslason, GKJ - Klúbbmeistari GKJ

Karlotta Einarsdóttir, NK - Klúbbmeistari NK

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR - Íslandsmeistari kvenna í höggleik og klúbbmeistari GR

Tinna Jóhannsdóttir, GK - Klúbbmeistari GK

Í höggleiknum um morguninn leika einnig tveir kylfingar um síðasta sætið í einvíginu.  Það eru sigurvegarar opinna móta á Nesvellinum fyrr í sumar og eru þeir Nökkvi Gunnarsson og Þórarinn Gunnar Birgisson báðir úr NK.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×