Golf

Ólafur komst ekki í gegnum niðurskurðinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafur Björn Loftsson.
Ólafur Björn Loftsson. Mynd/GVA
Ólafur Björn Loftsson er úr leik á Wyndham PGA-mótinu í Bandaríkjunum en hann var aðeins einu höggi frá því að komast í gegnum niðurskurðinn.

Ólafur lék á pari vallarins í dag en honum gekk mjög vel lengst af. Hann var langoftast að skila sér inn á flöt í tilsettum höggum en þurfti þó yfirleitt að tvípútta. Fékk hann því par á sextán af átján holum dagsins.

Fuglinn kom á fimmtu holu, rétt eins og í gær, en honum gekk ekki eins vel á síðari níu og á fyrsta keppnisdeginum. Þá fékk hann þrjá fugla og einn skolla en í dag paraði hann allar og fékk þar að auki skolla á fjórtándu holu.

Hefði Ólafur Björn haldið sér á einu höggi undir pari í dag hefði hann komist í gegnum niðurskurðinn og er því niðurstaðan afar svekkjandi fyrir okkar mann. Hann lék á samtals 138 höggum en þeir sem léku á 137 höggum eða færri komast áfram.

Þetta var í fyrsta sinn sem Íslendingur keppir á móti í PGA-mótaröðinni, þeirri sterkustu í heimi. Ólafur Björn er enn áhugamaður en hann stefnir á að gerast atvinnumaður eftir að hann útskrifast úr skóla í Bandaríkjunum í vor.

Var þetta því vonandi hans fyrsta af mörgum PGA-mótum en hann fékk talsverða athygli í sjónvarpsútsendingu Bandaríkjanna frá mótinu.

Heimamaðurinn Tommy Gainey er efstur eftir fyrstu tvo keppnisdagana á samtals tólf höggum undir pari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×