Íslenski boltinn

Mikilvægur sigur Selfoss á Akureyri

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Logi Ólafsson er þjálfari Selfoss.
Logi Ólafsson er þjálfari Selfoss. Mynd/Vilhelm
Selfoss vann mikilvægan sigur í baráttunni um sæti í Pepsi-deild karla með 2-1 sigur á KA á Akureyri í kvöld. Selfyssingar eru í öðru sæti deildarinnar með sjö stiga forystu á BÍ/Bolungarvík, sem á að vísu leik til góða.

Arilíus Marteinsson kom Selfossi yfir í fyrri hálfleik og Viðar Kjartansson bætti öðru marki við í síðari hálfleik. Davíð Rúnar Bjarnason klóraði í bakkann fyrir KA er hann skoraði með síðustu spyrnu leiksins.

Þetta var kærkominn sigur fyrir Selfoss sem hafði aðeins fengið eitt stig af níu mögulegum fyrir leikinn í kvöld.

KA er í áttunda sæti deildarinnar með 20 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×