Golf

Útlitið gott fyrir Bandaríkjamenn - Óþekkt nöfn berjast um sigurinn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Brendan Steele hefur farið á kostum á fyrstu 54 holunum. Fróðlegt verður að sjá hvernig hann meðhöndlar pressuna í dag.
Brendan Steele hefur farið á kostum á fyrstu 54 holunum. Fróðlegt verður að sjá hvernig hann meðhöndlar pressuna í dag.
Bandaríkjamennirnir Brendan Steele og Jason Dufner eru efstir og jafnir fyrir lokahringinn á PGA-meistaramótinu í golfi á Johns Creek golfvellinum í Atlanta í Bandaríkjunum. Mótinu lýkur í dag.

Steele og Dufner eru báðir á sjö höggum undir pari. Hinn 25 ára gamli Steele, sem leikur á sínu fyrsta stórmóti, spilaði hringinn í gær á fjórum höggum undir pari. Dufner spilaði á tveimur undir pari og fylgdi eftir frábærum hring á föstudaginn þegar hann var á fimm undir pari.

Bandaríkjamenn skipa fimm efstu sætin fyrir lokahringinn. Keegan Bradley er þriðji á sex undir, Scott Verplank á fimm undir og Steve Stricker á fjórum undir. Tiltölulega óþekkt nöfn en en Bandaríkjamönnum er sama svo framarlega sem landi þeirra vinni sigur.

Bandaríkjamaður hefur ekki borið sigur úr bítum á stórmóti í golfi síðan Phil Mickelson vann Masters-mótið í golfi árið 2010. Sex mót í röð án Bandarísks sigur sættir Kaninn sig ekki við enda góðu vanur meðan Tiger Woods var upp á sitt besta.

Adam Scott með kylfusveininn Steve Williams sér við hlið er í 11. sæti á tveimur undir pari. Efstu menn heimslistans, Englendingarnir Luke Donald (1) og Lee Westwood (2), eru í 13. sæti á einu höggi undir pari.

Keppni lýkur í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×