Körfubolti

Hafþór Ingi gengur til liðs við Snæfell

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hafþór Ingi boðinn velkominn í Hólminn.
Hafþór Ingi boðinn velkominn í Hólminn. Mynd/Snaefell.is
Körfuknattleikskappinn Hafþór Ingi Gunnarsson hefur gengið til liðs við Snæfell. Hafþór skrifaði undir eins árs samning en hann kemur til félagsins frá Skallagrími sem leikur í 1. deild.

Hafþór Ingi þekkir vel til í Stykkishólmi en hann spilaði með Snæfelli leiktímabilið 2003-2004.

Í viðtali á karfan.is kemur fram að Hafþór Ingi hafi stefnt á nám í Háskóla Íslands. Hann hafi hins vegar ekki fengið inngöngu í skólann og því ákveðið að breyta til. Fleiri lið hafi verið á höttunum eftir honum en Snæfell orðið fyrir valinu.

Þá hafa Daníel Ali Kazmi, Sveinn Arnar og Þorbergur Sæþórsson gengið frá leikmannasamningum við Snæfell.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×