Golf

Tiger Woods fellur áfram eins og steinn niður heimslistann

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods heldur áfram að hrapa niður heimslistann og fellur hann niður um sex sæti frá því í  síðustu viku.
Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods heldur áfram að hrapa niður heimslistann og fellur hann niður um sex sæti frá því í síðustu viku. AFP
Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods heldur áfram að hrapa niður heimslistann og fellur hann niður um sex sæti frá því í síðustu viku. Woods er þessa stundina í 44. sæti. Bandaríkjamaðurinn Webb Simpson er nú í 14. sæti eftir sigurinn á Deutsche Bank meistaramótinu í gær en hann var áður í 27. sæti.

Danski kylfingurinn Thomas Björn fikrar sig hægt og rólega upp listann en hann er nú í 28. sæti eftir sigurinn á Omega meistaramótinu á Evrópumótaröðinni á sunnudaginn. Björn hefur sigrað á þremur mótum á þessu ári en hann var í 59. sæti heimslistans í síðustu viku.

Efstu menn á heimslistanum eru:

1. Luke Donald, England, 10.41 stig

2. Lee Westwood, England, 8.16 stig

3. Martin Kaymer, Þýskaland, 7.03 stig

4. Rory McIlroy, Norður-Írland, 6.88 stig

5. Steve Stricker, Bandaríkin, 6.84 stig

6. Dustin Johnson, Bandaríkin, 6.75 stig

7. Jason Day, Ástralía, 6.09 stig

8. Phil Mickelson, Bandaríkin, 5.84 stig

9. Matt Luchar, Bandaríkin, 5.84 stig

10. Adam Scott, Ástralía, 5.83 stig

11. Nick Watney, Bandaríkin, 5.36 stig

12. Charl Schwartzel, Suður-Afríka, 5.11 stig

13. Graeme McDowell, Norður-Írland 4.75 stig

14. Webb Simpson, Bandaríkin, 4.67 stig

15. Bubba Watson, Bandaríkin, 4.66 stig

16. KJ Choi, Suður-Kóreu, 4.58 stig

17. David Toms, Bandaríkin, 4.07 stig

18. Ian Poulter, England, 4.02 stig

19. Paul Casey, England, 3.93 stig

20. Robert Karlsson, Svíþjóð, 3.86 stig




Fleiri fréttir

Sjá meira


×