Golf

Simpson hefur unnið sér inn 600 milljónir kr. á þessu ári

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Bandaríski kylfingurinn Webb Simpson er í miklum ham þessar vikurnar en hann landaði sínum öðrum sigri á aðeins þremur vikum á PGA mótaröðinni í golfi í gær.
Bandaríski kylfingurinn Webb Simpson er í miklum ham þessar vikurnar en hann landaði sínum öðrum sigri á aðeins þremur vikum á PGA mótaröðinni í golfi í gær. AP
Bandaríski kylfingurinn Webb Simpson er í miklum ham þessar vikurnar en hann landaði sínum öðrum sigri á aðeins þremur vikum á PGA mótaröðinni í golfi í gær. Simpson sigraði á Deutsche Bank-meistaramótinu eftir bráðabana gegn Chez Reavie en þeir léku báðir á 15 höggum undir pari.

Með sigrinum er Simpson í efsta sæti Fed-Ex úrslitakeppninnar þegar tvö mót eru eftir en hann er í dauðafæri að næla sér í gríðarlegt verðlaunafé sem er í boði fyrir sigurvegarann í úrslitakeppninni. Sigurvegarinn fær 10 milljónir dala eða sem nemur um 1,2 milljörðum kr.

Simpson, sem er 26 ára gamall, fagnaði sínum fyrsta sigri á ferlinum í Greensboro fyrir þremur vikum en á því móti keppti Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum. 

Á þessu ári hefur Simpson fengið um 600 milljónir kr. í verðlaunafé en hann fékk um 100 milljónir kr. í verðlaunafé á árinu 2010.

Luke Donald frá Englandi og efsti maður heimslistans, deildi þriðja sætinu með Brand Snedeker frá Bandaríkjunum og Ástralanum Jason Day. Þeir léku allir á -13.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×