Golf

Tiger gerir sinn fyrsta auglýsingasamning í tvö ár

Rolex segist vita hvað klukkan slær og segir að tími Tigers muni koma á ný.
Rolex segist vita hvað klukkan slær og segir að tími Tigers muni koma á ný.
Stórfyrirtækin hafa ekki beint beðið í röð fyrir utan heimili Tiger Woods síðustu tvö ár til þess að gera við hann auglýsingasamninga. Þvert á móti hefur Tiger misst marga slíka.

Úraframleiðandinn Rolex hefur þó enn trú á Tiger og ætlar að veðja á hann næstu árin. Tiger er búinn að gera nýjan risasamning við Rolex en þetta er hans fyrsti samningur í rúm tvö ár.

Talið er að samningurinn sé til fimm ára. Forráðamenn Rolex er þess fullvissir að Tiger muni rétta úr kútnum og eigi nóg eftir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×