Körfubolti

Karfan.is valdi Guðjón Lárusson bestan í fyrstu umferðinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðjón Lárusson.
Guðjón Lárusson. Mynd/Anton
Karfan.is ætlar að velja besta leikmann hverrar umferðar í Iceland Express deild karla og Stjörnumaðurinn Guðjón Lárusson er Gatorade-leikmaður fyrstu umferðarinnar. Guðjón lék þá afar vel í í fjarveru Jovans Zdravevski þegar Stjarnan vann 14 stiga sigur á Tindastól á Króknum, 105-81.

Guðjón skoraði 18 stig á 23 mínútum í leiknum og Stjörnumenn unnu þann kafla sem hann var inn á vellinum með 26 stiga mun. Guðjón hitti úr 8 af 10 skotum sínum og fékk 16 framlagsstig.

„Við vinnum fyrstu tvo leikina okkar í mótinu og maður getur ekki verið annað en sáttur við það. En ég endurtek bara orð liðsfélaga míns Jovans Zdravevski, við unnum en þetta er ekki fegurðarsamkeppni. Þetta telur samt og það er ekkert lið sem maður getur bókað auðveldan sigur gegn í þessari deild," sagði Guðjón meðal annars í viðtali á karfan.is en alla fréttina má finn með því að smella hér.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×