Körfubolti

Allt eftir bókinni í Iceland Express-deild karla

Sigurður Þorsteinsson og félagar í Grindavík unnu öruggan sigur.
Sigurður Þorsteinsson og félagar í Grindavík unnu öruggan sigur.
Þrír leikir fóru fram í Iceland Express-deild karla í kvöld. Keflavík, Grindavík og Þór Þorlákshöfn unnu öll frekar auðvelda sigra á andstæðingum sínum.

Grindvíkingar náðu forskotinu eftir aðeins nokkrar sekúndur og héldu því út leikinn og unnu að lokum öruggan 19 stiga sigur.

Sigurður Gunnar Þorsteinsson var stigahæstur í liði Grindavíkur með 15 stig/11 fráköst en Calvin O'Neal var stigahæstur í liði heimamanna með 22 stig.

Stólarnir höfðu lítið að gera í Keflavík að þessu sinni og Benedikt Guðmundsson vann sinn fyrsta leik með Þór Þorlákshöfn í úrvalsdeildinni.

Úrslit kvöldsins:

Fjölnir-Grindavík  76-95

Fjölnir: Calvin O‘Neal 22, Nathan Walkup 16 /8 fráköst, Ægir Þór Steinarsson 10, Árni Ragnarsson  9, Arnþór Freyr Guðmundsson 6, Trausti Eiríksson 6, Jón Sverrisson 4.

Grindavík: Sigurður Gunnar Þorsteinsson 15/11 fráköst, Ólafur Ólafsson 12, J‘Nathan Bullock 12, Giordan Watson 10/6 fráköst/8 stoðsendingar, Þorleifur Ólafsson 10, Ómar Örn Sævarsson 8, Björn Steinar Brynjólfsson 8, Páll Axel Vilbergsson 5, Þorsteinn Finnbogason 2.

Keflavík-Tindastóll  87-78

Keflavík: Steven Gerard Dagustino 17, Magnús Þór Gunnarsson 15/7 fráköst/6 stoðsendingar, Charles Michael Parker 14/14 fráköst, Jarryd Cole 12/13 fráköst, Arnar Freyr Jónsson 12, Gunnar H. Stefánsson 6, Sigurður Friðrik Gunnarsson 4, Sævar Freyr Eyjólfsson 4.

Tindastóll: Trey Hampton 19/11 fráköst, Maurice Miller 19, Svavar Atli Birgisson 17/8 fráköst, Friðrik Hreinsson 8, Þröstur Leó Jóhannsson 6/6 fráköst, Helgi Freyr Margeirsson 5, Hreinn Gunnar Birgisson 2, Helgi Rafn Viggósson 2/7 fráköst

ÍR-Þór Þ.  92-101

ÍR: James Bartolotta 30, Nemanja  Sovic 22/12 fráköst, Sveinbjörn Claessen 13, Hjalti Friðriksson 10, Eiríkur Önundarson 5, Kristinn Jónasson 5, Ellert Arnarson 5, Níels Dungal 2.

Þór Þorlákshöfn: Darrin Govens 40/8 fráköst/6 stoðsendingar, Guðmundur  Jónsson 18, Michael Ringgold 18/14 fráköst, Grétar Ingi Erlendsson 11, Marko Latinovic 8, Darri Hilmarsson 6.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×