Körfubolti

Njarðvíkingar burstuðu nýliða Valsmanna á Hlíðarenda

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Njarðvíkingurinn Rúnar Ingi Erlingsson.
Njarðvíkingurinn Rúnar Ingi Erlingsson.
Njarðvíkingar unnu 29 stiga stórsigur á Valsmönnum, 92-63, í Vodafone-höllinni að Hlíðarenda í fyrstu umferð Iceland Express deildar karla í körfubolta. Báðum þessum liðum var spáð falli úr deildinni í árlegri spá forráðamanna, þjálfara og fyrirliða en Njarðvíkingar áttu ekki í miklum vandræðum með nýliða Vals í kvöld.

Hjörtur Hrafn Einarson skoraði 18 stig fyrir Njarðvík og Travis Holmes var með 16 stig. Ungu strákarnir Ólafur Helgi Jónsson (12 stig) og Elvar Friðriksson (11 stig) vöktu líka athygli fyrir flotta frammistöðu. Igor Tratnik var yfirburðarmaður hjá Val með 22 stig og 9 fráköst.

Njarðvíkurliðið tók frumkvæðið í byrjun og var 30-21 yfir eftir fyrsta leikhlutann þar sem fimm leikmenn liðsins voru að skora fjögur stig eða meira. Njarðvíkingar byggðu ofan á góðan fyrsta leikhluta með því að skora sjö fyrstu stig annars leikhluta og komast sextán stigum yfir, 37-21.

Njarðvíkurliðið var síðan komið með 17 stiga forskot í hálfleik, 52-35. Igor Tratnik skoraði 16 af 35 stigum Valsliðsins í fyrri hálfleik en lítið gekk hjá bandarísku leikmönnum liðsins. Elvar Friðriksson var stigahæstur hjá Njarðvík með 11 stig en Bandaríkjamennirnir Cameron Echols og Travis Holmes voru báðir komnir með 10 stig.

Njarðvíkingar skoruðu fimm fyrstu stig seinni hálfleiksins og voru komnir í 63-37 áður en þriðji leikhlutinn var hálfnaður. Síðustu fimmtán mínútur leiksins voru því aðeins formsatriði fyrir gestina úr Njarðvíkunum.



Valur-Njarðvík 63-92 (21-30, 14-22, 5-23, 23-17)

Valur: Igor Tratnik 22/9 fráköst, Birgir Björn Pétursson 13/9 fráköst, Curry Collins 6, Alexander Dungal 6/6 fráköst, Bergur Ástráðsson 4, Benedikt Blöndal 4/4 fráköst, Snorri Þorvaldsson 3, Austin Magnus Bracey 3, Darnell Hugee 2.

Njarðvík: Hjörtur Hrafn Einarsson 18, Travis Holmes 16, Cameron Echols 12/5 fráköst, Ólafur Helgi Jónsson 12/4 fráköst, Elvar Már Friðriksson 11, Oddur Birnir Pétursson 7, Rúnar Ingi Erlingsson 4/6 fráköst, Sigurður Dagur Sturluson 4, Styrmir Gauti Fjeldsted 4, Óli Ragnar Alexandersson 2, Maciej Stanislav Baginski 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×