Körfubolti

KR ver titilinn samkvæmt spánni

Grindavík og KR verða efst samkvæmt spánni.
Grindavík og KR verða efst samkvæmt spánni. mynd/stefán
KR mun verja Íslandsmeistaratitil sinn í körfubolta karla samkvæmt árlegri spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna. Grindavík er spáð öðru sæti og Stjarnan kemur þar rétt á eftir.

Íslandsmeistarar KR mæta til leiks með mikið breytt lið en sterkir leikmenn á borð við Pavel Ermolinskij, Brynjar Þór Björnsson og Marcus Walker eru horfnir á braut.

Grindavík hefur styrkt sig mest milli ára og áttu margir von á því að þeim yrði spáð titlinum. Trúin á KR er aftur á móti enn mikil þó svo mannabreytingarnar séu miklar.

Afar áhugavert er að sjá Njarðvík spáð næstneðsta sæti deildarinnar en Njarðvíkingar munu tefla fram lítt reyndu liði í vetur.

Spáin:

1. KR 395 stig

2. Grindavík 374

3. Stjarnan 373

4. Snæfell 328

5. Keflavík 293

6. ÍR 244

7. Þór Þ 169

8. Haukar 149

9. Fjölnir 145   

10. Tindastóll 136

11. Njarðvík 134

12. Valur 71




Fleiri fréttir

Sjá meira


×