Körfubolti

Horton ekki hrifinn af íslenskum dómurum

Færslan hjá Horton um Kristin Óskarsson. Hann fjarlægði færsluna skömmu síðar.
Færslan hjá Horton um Kristin Óskarsson. Hann fjarlægði færsluna skömmu síðar.
Körfuboltadómarinn Kristinn Óskarsson hefur löngum verið frekar óvinsæll hjá KR-ingum. Hann hefur nú eignast nýjan aðdáanda í Ed Horton, leikmanni félagsins.

Horton fór mikinn á Twitter-síðu sinni í gær. Þar sagði hann að Kristinn væri skelfilegur dómari og kenndi síðan íslenskum dómurum um að hann hefði meiðst í leiknum gegn Þór Þorlákshöfn.

KR-ingnum rann þó reiðin fljótlega og hann fjarlægði færslurnar um íslensku dómarana og setti inn nýja færslu.

Þar stóð einfaldlega: "Ég biðst afsökunar."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×