Körfubolti

Stórt kvöld í Lengjubikarnum - bæði Reykjavíkur- og Reykjanesbæjarslagur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stjarnan og KR verða bæði í eldlínunni í kvöld.
Stjarnan og KR verða bæði í eldlínunni í kvöld. Mynd/Anton
Það fara fimm leikir fram í Lengjubikar karla í kvöld og það er hægt að halda því fram að tveir þeirra teljist til úrslitaleikja í sínum riðlum. Það er bæði Reykjavíkur og Reykjanesbæjarslagur á dagskránni í kvöld sem og að Stjarnan og Snæfell mætast í fyrri leik sínum af tveimur í þessari viku. Eftir leiki kvöldsins er riðlakeppnina hálfnuð og öll liðin innan hvers riðils hafa mæst einu sinni.

Stjarnan og Snæfell mætast í Ásgarði í Garðabæ klukkan 19.15. Liðin hafa unnið sitthvorn leikinn en það eru bara þrjú lið í þeirra riðli. Þriðja liðið, Tindastóll, hefur tapað báðum sínum leikjum og ætlar ekki að blanda sér í baráttu um sigurinn í riðlinum. Baráttan um sæti í undanúrslitum Lengjubikarsins stendur því á milli Hólmara og Garðbæinga. Stjarnan og Snæfell mætast síðan aftur í Iceland Express deild karla á föstudagskvöldið.  

Njarðvík og Keflavík mætast í Ljónagryfjunni í Njarðvík klukkan 19.15. Bæði lið hafa unnið tvo fyrstu leiki sína í keppninni og það er ljóst að þau munu berjast um laus sæti í undanúrslitunum. Liðin hafa mætt í mótið með mismunandi áherslur. Njarðvíkingar leggja allt sitt traust á unga uppalda leikmenn en Keflvíkingar tefla hinsvegar fram þremur erlendum leikmönnum og þjálfarinn Sigurður Ingimundarson hefur sagt það að hann vilji ekki kasta ungu strákunum strax út í djúpu laugina.

ÍR tekur á móti KR í Seljaskólanum klukkan 19.15 en KR getur stigið stórt skref í átt að tryggja sér sigur í riðlinum með því að vinna í kvöld. KR hefur unnið tvo fyrstu leiki sína en ÍR og Þór úr Þorlákshöfn hafa bæði unnið einn og tapað einum. Skallagrímur tekur á móti Þór úr Þorlákshöfn í hinum leik riðilsins.

Fimmti og síðasti leikur kvöldsins er síðan leikur KFÍ og Fjölnis á Ísafirði en honum var frestað í gær. 1.deildarlið KFÍ kom mikið á óvart með því að vinna Hauka í síðasta leik en KFÍ er eins og er með fullt hús á toppi 1. deildarinnar.

Staðan í riðlunum í Lengjubikarnum:

(Liðin spila tvöfalda umferð og aðeins efsta liðið kemst áfram)

Lengjubikar karlar, A-riðill

1. KR        2    2    0    192-176        4

2. Þór Þ.    2    1    1    184-171        2

3. ÍR        2    1    1    166-168        2

4. Skallagrímur    2    0    2    160-187        0

Lengjubikar karlar, B-riðill

1. Grindavík    3    3    0    275-232        6

2. KFÍ        2    1    1    154-176        2

3. Haukar    3    1    2    230-246        2

4. Fjölnir    2    0    2    152-157        0

Lengjubikar karlar, C-riðill

1. Stjarnan    1    1    0    87-69        2

2. Snæfell    1    1    0    93-91        2

3. Tindastóll    2    0    2    160-180        0

Lengjubikar karlar, D-riðill

1. Njarðvík    2    2    0    186-139        4

2. Keflavík    2    2    0    170-137        4

3. Hamar    3    1    2    222-271        2

4  Valur    3    0    3    222-253        0






Fleiri fréttir

Sjá meira


×