Njarðvíkingar lentu 16-0 undir en unnu samt í Seljaskóla Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. nóvember 2011 21:01 Elvar Már Friðriksson í leiknum í kvöld. Mynd/Vilhelm
Njarðvíkingar unnu ótrúlegan endurkomusigur á ÍR-ingum í Iceland Express deild karla í körufbolta í kvöld. Njarðvík vann upp sextán stiga forskot Breiðhyltinga og tryggði sér að lokum 99-95 sigur. Þetta var líka langþráður sigur hjá Njarðvíkurliðinu sem var fyrir leikinn búið að tapa þremur deildarleikjum í röð. Travis Holmes var með 33 stig og 15 fráköst fyrir Njarðvík í kvöld, Cameron Echols bætti við 28 stigum og 10 fráköstum og Elvar Már Friðriksson var með 12 stig og 5 stoðsendingar. Nemanja Sovic og James Bartolotta skoruðu báðir 31 stig fyrir ÍR-liðið en það dugði ekki til. Kristinn Jónasson var síðan með 18 stig. ÍR-ingar byrjuðu af krafti og skoruðu 16 fyrstu stig leiksins þar af komu níu þeira með þriggja stiga skotum. Njarðvíkingar klikkuðu á níu fyrstu skotum sínum og skoruðu ekki fyrr en eftir tæplega fjögurra mínútna leik. ÍR var síðan 27-15 yfir eftir fyrsta leikhlutann og með 50-38 forystu í hálfleik. Nemanja Sovic skoraði 17 stig í fyrri hálfleiknum og James Bartolotta var með 13 stig. Njarðvíkingar voru ekki á því að gefast upp og komu sér inn í leikinn með því að vinna þriðja leikhlutann 31-23 og minnka muninn í fjögur stig, 73-69, fyrir lokaleikhlutann. Njarðvíkingar héldu uppteknum hætti í fjórða leikhlutanum og voru komnir með forystuna þegar sjö mínútur voru eftir, 81-80. Liðin skiptust á um forystuna næstu mínúturnar þar til að Njarðvíkurliðið náði góðum spretti og komst sjö stigum yfir, 98-91. Með því gerðu Njarðvíkingar út um leikinn og fögnuðu því ótrúlegum sigri í leikslok.ÍR-Njarðvík 95-99 (27-15, 23-23, 23-31, 22-30)ÍR: Nemanja Sovic 31/9 fráköst, James Bartolotta 31, Kristinn Jónasson 18, Eiríkur Önundarson 6, Níels Dungal 6/6 fráköst/5 stoðsendingar, Ellert Arnarson 3/4 fráköst/5 stoðsendingar.Njarðvík: Travis Holmes 33/15 fráköst, Cameron Echols 28/10 fráköst, Elvar Már Friðriksson 12/4 fráköst/5 stoðsendingar, Ólafur Helgi Jónsson 10, Maciej Stanislav Baginski 10, Styrmir Gauti Fjeldsted 4, Rúnar Ingi Erlingsson 2.
Dominos-deild karla Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira