Körfubolti

Ívar stýrir Haukaliðinu í Grindavík í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ívar Ásgrímsson og Pétur Ingvarsson.
Ívar Ásgrímsson og Pétur Ingvarsson. Mynd/Valli
Ívar Ásgrímsson mun stýra liði Hauka þegar liðið fer til Grindavíkur og mætir heimamönnum í Iceland Express deild karla í kvöld. Haukar eru án þjálfara eftir að Pétur Ingvarsson sagði starfi sínu lausu á þriðjudaginn var. Þetta kemur fram á heimasíðu Hauka.

Ívar hefur verið fenginn til þess að stýra Haukaliðinu tímabundið eða þangað til að gengið verður frá ráðningu nýs þjálfara en Ívar var aðstoðarmaður Péturs undanfarin ár.

Ívar þjálfaði Hauka síðast frá 1999 til 2001 en undir hans stjórn vann liðið 30 af 44 leikjum sínum í deildinni og 4 af 10 leikjum sínum í úrslitakeppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×