Golf

Woods hefur tekið forystu í Ástralíu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Tiger Woods horfir á eftir boltanum í nótt.
Tiger Woods horfir á eftir boltanum í nótt. Nordic Photos / Getty Images
Tiger Woods er greinilega að finna aftur sitt langþráða gamla form en hann er nú í forystu á opna ástralska meistaramótinu í golfi eftir fyrstu tvo keppnisdagana.

Woods lék í gær á 67 höggum, fimm höggum undir pari vallarins. Samtals er hann á níu höggum undir pari og hefur eins höggs forystu á næsta mann. Woods hefur aldrei spilað betur tvo daga í röð á þessu ári.

Þetta er einnig í fyrsta sinn á þessu ári sem hann er í forystu á móti á milli keppnisdaga og í fyrsta sinn í tvö ár á jafn sterku móti.

„Ég spilaði virkilega vel,“ sagði Woods. „Þó svo að ég hafi spilað á fimm höggum undir pari fannst mér að ég hefði jafnvel getað skilað mér í hús á 8-9 höggum undir pari.“

Í öðru sæti er heimamaðurinn Peter O'Malley sem lék á 66 höggum í gær. Jason Day, sem var í sama holli og Woods, er í þriðja sæti tveimur höggum á eftir Tiger.

Þrátt fyrir að Woods spilaði vel í gær missti hann engu að síður af fuglum á 11. og 17. holu, sem báðar eru par fimm, auk þess sem hann missti rúmlega þriggja metra pútt fyrir erni á 14. holu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×