Golf

Tiger fær 360 milljónir kr. fyrir það eitt að mæta til leiks

Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods nýtur enn vinsælda og til marks um það þá  fær hann um 360 milljónir kr. fyrir það eitt að mæta til leiks á HSBC meistaramótið.
Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods nýtur enn vinsælda og til marks um það þá fær hann um 360 milljónir kr. fyrir það eitt að mæta til leiks á HSBC meistaramótið. Getty Images / Nordic Photos
Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods nýtur enn vinsælda og til marks um það þá fær hann um 360 milljónir kr. fyrir það eitt að mæta til leiks á HSBC meistaramótið sem fram fer í Abu Dhabi. Mótið, sem fram fer í lok janúar á næsta ári, er hluti af Evrópumótaröðinni.

Tiger Woods sýndi ágæta takta í Forsetabikarnum með bandaríska úrvalsliðinu í golfi á dögunum og hann virðist vera á réttri leið eftir slakt gengi undanfarin misseri. Hann endaði í þriðja sætið á Opna ástralska meistaramótinu en hann hefur ekki unnið golfmót frá því lok ársins 2009.

Á þessu tímabili hefur Woods „aðeins" unnið sér inn um 80 milljónir kr. í verðlaunafé á PGA mótaröðinni og er hann í 128. sæti á peningalistanum.

Til samanburðar má nefna að þessi upphæð sem Woods fær frá mótshöldurum í Abu Dhabi er svipað og það verðlaunafé sem kylfingurinn í 20. sæti peningalistans á PGA mótaröðinni hefur unnið sér inn á þessu tímabili.

Englendingurinn Luke Donald er þar efstur með rétt um 800 milljónir kr. í verðlaunafé á alls 19 mótum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×