Golf

Golfið í stöðugri sókn á Íslandi | 2% fjölgun á árinu 2011

Frá Íslandsmótinu í höggleik á Kiðjabergsvelli.
Frá Íslandsmótinu í höggleik á Kiðjabergsvelli. Golf.is
Kylfingum á Ísland sem eru skráðir í golfklúbb fjölgaði um 2% á síðasta ári en gríðarleg fjölgun hefur átt sér stað á undanförnum áratug. Í ársskýrslu GSÍ kemur fram að kylfingum hefur fjölgað um tæplega 9 þúsund frá árinu 2000 en 16.054 kylfingar voru skráðir félagar í 64 golfklúbbum landsins árið 2011.

Frá árinu 2000 hefur það aðeins einu sinni gerst að kylfingum hefur fækkað á milli ára, það gerðist árið 2007, sem nam -1% fækkun. Mesta fjölgunin átti sér stað á árunum 2000-2002. Á þessum árum fjölgaði kylfingum samtals um 3.800.

Mesta fjölgunin hjá 55 ára og eldri
Karlar eru í miklum meirihluta eða 11.653 en konurnar eru alls 4.401. Mesta fjölgunin í golfinu er í aldurshópnum 55 ára og eldri en 465 nýliðar á þessum aldri skráðu sig í golfklúbb á þessu ári. Kylfingar á aldrinum 20-49 ára eru 40% af heildarfjöldanum. Í aldurshópnum 14 ára og yngri er lítil nýliðum en tæplega 1200 kylfingar eru á þessum aldri í golfklúbbum landsins.

Aldurshópurinn 19-21 árs er fámennur en aðeins 353 á þessum aldri eru skráðir í golfklúbb á Íslandi. Þar af eru 44 konur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×