Lífið

Dúett með Doom

Söngvarinn er að vinna með bandaríska rapparanum Doom.
nordicphotos/getty
Söngvarinn er að vinna með bandaríska rapparanum Doom. nordicphotos/getty
Thom Yorke, söngvari Radiohead, er að vinna að nýrri plötu með bandaríska rapparanum Doom. „Við erum að vinna að nokkrum dúettum,“ sagði Doom. Þetta er á byrjunarstigi en við munum örugglega taka upp stóra plötu saman.“ Yorke er mikill aðdáandi rapparans og endurhljóðblandaði lag hans, Gazzillion Ear, fyrir tveimur árum. Yorke hefur unnið með fleirum að undanförnu því stutt er síðan hann tók upp smáskífulag með Four Tet og Burial. Skömmu áður tróð hann óvænt upp sem plötusnúður á klúbbi í Los Angeles. Nýjasta plata Radiohead, The King of Limbs, kom út í síðasta mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×