Aldrei aftur Útey Sigurður Árni Þórðarson skrifar 26. júlí 2011 07:30 Hvað gera unglingar og ungt fólk í sumarbúðum um mitt sumar? Tala saman, hlæja, ræða málin, njóta lífsins. Og svo er þetta tími upplifana, hrifningar og að verða ástfanginn. Útey er á einu dásamlegasta svæði Noregs. Eplaakrarnir við Tyrivatnið eru sannarlega heillandi. Systir mín og fjölskylda býr í nágrenninu og bátalægi þeirra er rétt við Útey, sem Verkamannaflokkurinn á. Systir mín fer með gesti sína á þetta svæði unaðar og dásemda. Þegar ég var við bryggjuna í Útey hugsaði ég um hvað svona eyja væri góður vettvangur fyrir lífsmótun fólks til framtíðar. Svo varð heimsendir í þessari paradís, sem djöfull læddist inn í. Þegar sprengjan sprakk í Ósló héldu flestir, að óður múslimi hefði unnið hryllingsverkið. En hið illa kom ekki að utan heldur að innan. Hinn illi var ekki aðkomumaður heldur innfæddur. Forsætisráðherra Noregs endurómaði amerískan talshátt og sagði verknaðinn vera heigulsverk. Það er rangt því sprenging og fjöldamorð er fremur æði haturs. Að baki djöfulskapnum er ótti, sem beinist að öllu því sem er öðruvísi: Ótti við aðrar lífsskoðanir, litarhætti, öðruvísi menningu og fólk. Ótti elur af sér hatur og hatur gengur alltaf í lið með dauðanum. Ofbeldið á sér því stefnu, berst gegn opnu samfélagi umhyggju og samhjálpar. Illvirkin eru atlaga gegn framtíð, sem umfaðmar ríkidæmi margra kynþátta og samvinnu menningar, átrúnaðar og fjölbreytileika. Hinn norski fjöldamorðingi er ekki ruglaður byssukall, heldur maður sem fyrirlítur öðruvísi fólk og hatar fjölbreytileika. Hann reynir að fyrirbyggja, að ólíkt fólk með mismunandi trú og sið geti búið saman í friði og jafnvel orðið ástfangið hvert af öðru. Sprengingin í Ósló og fjöldamorðin vega að gildum, trú, menningu og stefnu norrænna þjóða. Við erum öll Norðmenn þessa sorgardaga. Eigum við að leyfa höggbylgjunni frá Ósló að hræða eða skothríðinni í Útey að beygja okkur? Nei. Mæður og feður, sem gáfu börnum sínum gildi, elsku og framtíð, fóru til að sækja lík barna sinna. Glæpur var unninn á þeim, norsku þjóðinni en líka okkur – öllum. Hatrið réðst gegn ástinni. Látum ekki ungt fólk deyja til einskis, heldur heiðrum það með því að treysta samfélagsfriðinn. Mætum ótta með trausti. Hvikum ekki frá uppeldi fólks til menningarlegrar og trúarlegrar fjölbreytni. Ræðum opinskátt eðli hatursins. Leyfum lífinu að lifa. Til forna var sagt: Aldrei aftur Masada. Gegn hatri nútíma: Aldrei aftur Útey. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Sr. Sigurður Árni Þórðarson Mest lesið Nú er nóg komið af aðdróttunum og afvegaleiðingum körfuboltaþjálfarans Viðar Halldórsson Skoðun Atlaga gegn trans fólki er atlaga gegn mannréttindum Drífa Snædal, Bjarndís Helga Tómasdóttir Skoðun Landsvirkjun semur lög um bráðabirgðavirkjanir Snæbjörn Guðmundsson Skoðun Nú þurfa foreldrar að vera hugrakkir Jón Pétur Zimsen Skoðun Palestína í Eurovision Sigurður Loftur Thorlacius Skoðun Ný sýn á almenningssjónvarp í almannaþágu, eða hvað? Hólmgeir Baldursson Skoðun Útúrsnúningur um „gigg-hagkerfið“ Finnbjörn A. Hermannsson Skoðun Sjálfbærni í stað sóunar Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Brýn þörf á auknum fjárveitingum vegna sjávarflóða Anton Guðmundsson Skoðun Árangur Eden stefnunnar - fimmtán ára saga á Íslandi Sigrún Huld Þorgrímsdóttir Skoðun
Atlaga gegn trans fólki er atlaga gegn mannréttindum Drífa Snædal, Bjarndís Helga Tómasdóttir Skoðun
Atlaga gegn trans fólki er atlaga gegn mannréttindum Drífa Snædal, Bjarndís Helga Tómasdóttir Skoðun