Helmingur nefnda uppfyllir kynjakvóta 14. október 2011 02:00 Utanríkisráðuneytið Nefndir sem skipaðar voru á vegum utanríkisráðuneytisins í fyrra voru allar í samræmi við lög um kynjakvóta. fréttablaðið/gva
Konur voru aðeins fjórðungur fulltrúa í nefndum á vegum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins í fyrra. Þetta kemur fram í skýrslu Jafnréttisstofu um nefndir, ráð og stjórnir á vegum ráðuneytanna. Hlutfall kvenna var lakast í nefndum á vegum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins. Konur skipuðu í heild 40 prósent nefndarsæta á vegum ráðuneytanna og karlar 60 prósent. Hlutfallið var hins vegar ólíkt milli ráðuneyta og var félags- og tryggingamálaráðuneytið eina ráðuneytið þar sem konur voru í meirihluta nefnda í fyrra. Þær voru 51 prósent nefndarmanna á móti 49 prósentum karla, en í heilbrigðisráðuneytinu voru hlutföll kynjanna hnífjöfn. Í öðrum ráðuneytum voru karlar í meirihluta. Kveðið er á um kynjakvóta í nefndum, stjórnum og ráðum á vegum ríkisins í lögum og á hlutur hvors kyns ekki að vera minni en 40 prósent nema málefnalegar ástæður liggi að baki. Helmingur þeirra nefnda sem voru starfandi á síðasta ári var í samræmi við lög um kynjakvóta, en 66 prósent þeirra nefnda sem voru skipaðar í fyrra uppfylltu skilyrði laganna. Utanríkisráðuneytið var eina ráðuneytið sem skipaði þá í allar sínar nefndir samkvæmt lögunum. Dóms- og mannréttindaráðuneytið skipaði aðeins 38 prósent sinna nefnda í samræmi við þau. - þeb
Fréttir Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Fleiri fréttir Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Sjá meira