Það er jólalegt í umferðinni þessa dagana, því strætisvagnar Strætó bs. skarta nú skrautlegum jólamyndum að utan og innan.
Óhætt er að segja að listamennirnir séu ungir og upprennandi, því það voru leikskólabörn hvaðanæva að af höfuðborgarsvæðinu sem hönnuðu skreytingarnar. Með þessu verkefni vill Strætó leggja sitt af mörkum til að færa borgina í hátíðarbúning um leið og ungviðið er hvatt til að virkja sköpunargleðina.
Verkefnið hófst í byrjun nóvember, þegar bréf var sent til allra leikskóla á höfuðborgarsvæðinu og leikskólakennarar hvattir til fá börnin til að teikna jólamyndir til að skreyta strætisvagnana um jólin. Mjög vel var tekið í erindið og alls bárust myndir frá 58 leikskólum.
Unnið var úr myndunum þannig að leikskólarnir sem sendu inn „eignuðust" einn strætisvagn hver, þ.e. myndir frá hverjum leikskóla skreyta hliðar og bakhluta á einum strætisvagni. Að auki er inni í vagninum veggspjald með myndum og upplýsingum um leikskólann sem skreytti vagninn.
Jafnframt er allar myndirnar sem bárust aðgengilegar á Strætó.is.

„Þetta hefur án efa verið eitt skemmtilegasta verkefnið sem við höfum unnið að, því börnin eru svo hugmyndarík og hafa greinilega haft gaman af því að teikna jólamyndir fyrir Strætó. Ég vona að bæjarbúar muni hafa jafn gaman af þessu og við og komist í hátíðarskap í umferðinni við að sjá þessar líflegu myndir barnanna okkar fram að jólum," segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs.
Strætó bs. stendur sig vel í að lífga upp á bæjarlífið í aðdraganda jólanna, Fyrirtækið hefur einnig boðið listafólki af öllu tagi að troða upp í strætó nú síðustu dagana fyrir jól. Strætófarþegar geta því átt von á að heyra lifandi tónlist, ljóðalestur eða verða vitni að einhverjum öðrum listviðburði á ferðum sínum í strætó þessa dagana.