Golf

Fjórir meðlimir í Team Iceland í golfinu | Breytt skipulag afrekshópa

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tinna Jóhannsdóttir og Birgir Leifur Hafþórsson eru bæði í Team Iceland.
Tinna Jóhannsdóttir og Birgir Leifur Hafþórsson eru bæði í Team Iceland. Mynd/Daníel
Úlfar Jónsson nýráðinn landsliðsþjálfari í golfi hefur að undanförnum vikum verið að skipuleggja æfingardagskrá fyrir afrekshópa GSÍ. Úlfar hefur skipt hópnum upp í samræmi við stöðu og markmið hvers kylfings og nefnast hóparnir Team Iceland, A hópur og B hópur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Golfsambandinu.

Team Iceland skipa þeir kylfingar sem eru af fullri alvöru í atvinnumennsku, eða hafa það markmið innan tíðar að stíga skrefið úr áhugamennsku yfir í atvinnumennsku; og hafa sýnt frábæran árangur í mótum hérlendis og erlendis. Það eru fjórir kylfingar sem komast í þann hóp en það eru Birgir Leifur Hafþórsson, Ólafur Björn Loftsson, Stefán Már Stefánsson og Tinna Jóhannsdóttir.

A-hópur er skipaður þeim kylfingum sem sýndu hvað bestan árangur í sínum flokkum á seinasta tímabili. Í b-hópi verða kylfingar í afrekshópi GSÍ sem ekki skipa Team Iceland eða A hóp. Ekki er verið að gefa kylfingi í hópi A öruggt sæti í landsliðsverkefni. Kylfingur í B hópi hefur sömu tækifæri á landsliðsverkefnum með því að ná góðum árangri í viðmiðunarmótum. Úlfar mun leggja áherslu á að fylgst með framvindu kylfingana í vetur á GSÍ æfingum sem og klúbbaæfingum, í samráði við þjálfara viðkomandi kylfinga.

Team Iceland

Birgir Leifur Hafþórsson

Ólafur Björn Loftsson

Stefán Már Stefánsson

Tinna Jóhannsdóttir

A-hópur

Alfreð Brynjar Kristinsson

Andri Þór Björnsson

Arnar Snær Hákonarson

Arnór Ingi Finnbjörnsson

Axel Bóasson

Birgir Björn Magnússon

Bjarki Pétursson

Gísli Sveinbergsson

Guðjón Henning Hilmarsson

Guðmundur Ágúst Kristjánsson

Haraldur Franklín Magnús

Kristján Þór Einarsson

Ragnar Már Garðarsson

Rúnar Arnórsson

Þórður Rafn Gissurarson

Anna Sólveig Snorradóttir

Guðrún Brá Björgvinsdóttir

Guðrún Pétursdóttir

Ingunn Gunnarsdóttir

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir

Ragnhildur Kristinsdóttir

Signý Arnórsdóttir

Sunna Víðisdóttir

Valdís Þóra Jónsdóttir

B hópur

Andri Már Óskarsson

Aron Snær Júlíusson

Benedikt Sveinsson

Dagur Ebenezersson

Emil Þór Ragnarsson

Gísli Þór Þórðarson

Ísak Jasonarson

Kristinn Reyr Sigurðsson

Magnús Björn Sigurðsson

Óðinn Þór Ríkharðsson

Berglind Björnsdóttir

Birta Dís Jónsdóttir

Eygló Myrra Óskarsdóttir

Halla Björk Ragnarsdóttir

Högna Kristbjörg Knútsdóttir

Íris Katla Guðmundsdóttir

Karen Guðnadóttir

Ragna Björk Ólafsdóttir

Saga Ísafold Arnarsdóttir

Sara Margrét Hinriksdóttir

Særós Eva Óskarsdóttir

Þóra Kristín Ragnarsdóttir

Þórdís Rögnvaldsdóttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×