Körfubolti

Sjötti sigur Stólanna í síðustu sjö leikjum - myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bárður Eyþórsson er að gera flotta hluti með Tindastólsliðið í körfunni en Stólarnir unnu 88-85 útisigur á Stjörnunni í tólftu umferð Iceland Express deildar karla í gær. Þegar Bárður tók við hliðinu í lok október var liðið búið að tapa öllum sínum leikjum.

Tindastóll tapaði fyrstu tveimur leikjunum undir stjórn Bárðar en hefur nú unnið sex af síðustu sjö leikjum sínum og er komið upp í 8. sæti deildarinnar. Eina tapið í þessum sjö leikjum kom í framlengdum leik á móti Snæfelli.

Anton Brink, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á leik Stjörnunnar og Tindastóls í Garðabænum í gær og náði þessum skemmtilegu myndum. Myndirnar má sjá í albúminu hér að neðan. Hægt er að sjá myndirnar stærri með því að smella á þær.



Mynd/Anton



Fleiri fréttir

Sjá meira


×