Körfubolti

Snæfellingar eiga troðslumeistarann í ár

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Quincy Hankins-Cole, úr Snæfelli fær hér verðlaun sín frá Hannesi S. Jónssyni, formanni KKÍ.
Quincy Hankins-Cole, úr Snæfelli fær hér verðlaun sín frá Hannesi S. Jónssyni, formanni KKÍ. Mynd/Heimasíða KKÍ
Quincy Hankins-Cole, úr Snæfelli, varð troðslumeistari Stjörnuleiksins 2012 en Stjörnuhátíð KKÍ stendur nú yfir í Dalhúsum í Grafarvogi. Hankins-Cole mætti Nathan Walkup, úr Fjölni, í dag í úrslitum troðslukeppninnar en þetta kemur fram á heimasíðu KKÍ.

Ásamt Quincy og Nathan tóku þeir Christopher Smith úr Haukum og Giordan Watsons úr Grindavík þátt i troðslukeppninni í ár en enginn íslenskur leikmaður reyndi sig meðal þeirra bandarísku að þessu sinni.

Quincy sem stóð uppi sem sigurvegari eftir frábær úrslit en bæði hann og Nathan Walkup buðu upp á skemmtilegar troðslur í úrslitunum.

Forkeppnin:

Quincy Hankins-Cole 28 stig

Nathan Walkup 28 stig

Giordan Watson 26 stig

Christopher Smith 24 stig




Fleiri fréttir

Sjá meira


×