Körfubolti

Renato Lindmets kominn aftur til Stjörnumanna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Renato Lindmets.
Renato Lindmets. Mynd/Anton
Stjarnan hefur fengið liðstyrk fyrir lokabaráttuna í körfuboltanum en karfan.is segir frá því að Renato Lindmets sé mættur á ný í Garðabæinn. Lindmets stóð sig vel með Stjörnunni í fyrra þegar liðið fór alla leið í lokaúrslitin um Íslandsmeistaratitilinn.

Renato Lindmets spilar inn í teig og var með 17,7 stig, 7,7 fráköst og 3,0 stoðsendingar að meðaltali í leik með Stjörnunni á síðasta tímabili. Hann fór til Portúgals en fékk sig lausann á dögunum og mun klára tímabilið með Sjtörnunni.

Renato Lindmets mun spila sinn fyrsta leik á þessu tímabili þegar Stjarnan tekur á móti toppliði Grindavíkur í Iceland Express deild karla annað kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×