KR-ingar fyrstu bikarmeistararnir í fjögur ár sem komast í 8 liða úrslit Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. janúar 2012 16:15 Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, ræðir við sína menn í gær. Mynd/Valli
Íslands- og bikarmeistarar KR tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Poweradebikars karla í gær með því að vinna 81-76 sigur á Grindavík í stórskemmtilegum og spennandi leik í DHL-höllinni. KR-ingar enduðu þar með fjögurra ára bið eftir því að bikarmeistarar ársins á undan kæmust í gegn tvær fyrstu umferðir bikarsins. Bikarmeistarar þriggja síðustu ára á undan höfðu allir dottið út í 16 eða 32 liða úrslitunum og ÍR-liðið frá 2008 var síðasta bikarmeistaraliðið sem komst í átta liða úrslitin. Keflvíkingar eru aftur á móti síðasta liðið til þess að verja bikarmeistaratitilinn en það gerðu þeir veturinn 2003 til 2004. KR-ingar unnu bikarinn í fyrsta sinn í tuttugu ár síðasta vetur en þeir hafa ekki unnið bikarmeistaratitilinn tvö ár í röð síðan að þeir gerðu það 1974. KR-ingar unnu bikarinn einnig 1979 og 1984. 1979-80 duttu þeir út í undanúrslitum og 1984-85 töpuðu þeir í bikarúrslitaleiknum. KR fór síðan alla leið í undanúrslit þegar þeir reyndu að verja bikarinn síðast 1991-92. KR-ingar hafa nú unnið tvo bikarleiki á þessu tímabili eða einum bikarleik meira en bikarmeistarar þriggja síðustu ára á undan náðu samanlagt í sinni bikarmeistaratitilvörn. Snæfell 2009 og Stjarnan 2010 duttu út úr 32 liða úrslitunum og Snæfell datt út í 16 liða úrslitunum í fyrra. Öll þessi þrjú lið duttu út eftir tap á heimavelli.Gengi bikarmeistara síðustu ára: 2012 KR - komnir í 8 liða úrslit 2011 Snæfell - 16 liða úrslit (96-98 tap fyrir Njarðvík) 2010 Stjarnan - 32 liða úrslit (76-97 tap fyrir Keflavík) 2009 Snæfell - 32 liða úrslit (73-79 tap fyrir KR) 2008 ÍR - 8 liða úrslit (80-83 tap fyrir Skallagrími) 2007 Grindavík - Undanúrslit (91-95 tap fyrir ÍR) 2006 Njarðvík - Undanúrslit (85-89 tap fyrir Keflavík) 2005 Keflavík - 8 liða úrslit (85-88 tap fyrir Njarðvík) 2004 Keflavík - Bikarmeistari
Dominos-deild karla Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira