Körfubolti

Örvari sagt upp hjá Fjölni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Örvar Þór Kristjánsson
Örvar Þór Kristjánsson Mynd/Anton
Stjórn körfuknattleiksdeildar Fjölnis ákvað að segja upp samningi Örvars Þórs Kristjánssonar þjálfara liðsins á síðustu leiktíð. Fjölnir missti naumlega af sæti í úrslitakeppninni á dögunum.

Þetta kom fram í yfirlýsingu frá stjórninni. Voru Örvari þökkuð mjög góðu störf sem hann hefur skilað af sér til deildarinnar, eins og segir í yfirlýsingunni.

Fjölnir endaði í tíunda sæti Iceland Express-deildar karla með sextán stig, tveimur á eftir Njarðvík sem var síðasta liðið til að tryggja sig inn í úrslitakeppnina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×