Golf

Þrjár klámmyndaleikkonur segja frá öllu í nýrri mynd um Tiger

Tiger ætlar seint að losna við gamlar syndir.
Tiger ætlar seint að losna við gamlar syndir.
Þegar Tiger Woods er loksins farinn að spila almennilegt golf á nýjan leik og virðist vera búinn að hrista af sér áföllinn í einkalífinu dynur ógæfan aftur yfir.

Þrjár klámmyndaleikkonur, sem allar segjast hafa verið í tygjum við Tiger, segja frá öllu í nýrri mynd sem verður frumsýnd á þriðjudag. Tímasetningin er engin tilviljun enda hefst Masters-mótið á fimmtudag og allra augu eru á Tiger.

"Leikkonurnar" heita Devon James, Holly Sampson og Joslyn James og myndin ber nafnið: "3 Mistresses: Notorious Tales of the World´s Greatest Golfer."

Leikstjóri myndarinnar lofar því að myndin verði vel þess virði að sjá enda tali konurnar allar mjög opinskátt um meint samband sitt við kylfinginn.

Fastlega má búast við að Tiger verði talsvert spurður út í þetta mál eftir helgi og spurning hvort það trufli sveifluna hjá honum á Masters.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×