Körfubolti

Stjörnumenn sterkari á lokasprettinum - myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Stefán
Stjarnan vann í kvöld sinn þriðja sigur í röð á Keflavík og komst í 1-0 í einvígi liðanna í átta liða úrslitum Iceland Express deild karla.

Stjörnumenn unnu síðustu fjórar mínútur leiksins 18-9 og tryggðu sér 95-87 sigur. Stjarnan vantar nú bara einn sigur til þess að senda Keflvíkinga í sumarfrí.

Justin Shouse, leikstjórnandi Stjörnunnar, gaf 16 stoðsendingar á félaga sína í leiknum auk þess að skora 7 af 16 stigum sínum á lokakaflanum.

Stefán Karlsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á leik Stjörnunnar og Keflavíkur í Ásgarði í kvöld og náði þessum skemmtilegu myndum. Myndirnar má sjá í albúminu hér að neðan. Hægt er að sjá myndirnar stærri með því að smella á þær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×