Körfubolti

KR-sigur eftir svakalega sigurkörfu - myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Daníel
KR-ingar héldu sigurgöngu sinni áfram í úrslitakeppninni með því að vinna Þór úr Þorlákshöfn 82-79 í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Iceland Express deildar karla í körfubolta. KR-ingar hafa þar með unnið alla þrjá leiki sína í úrslitakeppninni í ár auk þess að vinna tvo síðustu leiki sína í úrslitakeppninni í fyrra.

Joshua Brown tryggði sigurinn með svakalegri þriggja stiga körfu rétt áður en leiktíminn rann út en hann var stigahæstur í KR-liðinu með 22 stig. Brown var bara búinn að hitta úr 1 af 7 þriggja stiga skotum sínum fyrir lokaskotið.

Daníel Rúnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á leik KR og Þórs í DHL-höllinni í kvöld og náði þessum skemmtilegu myndum. Myndirnar má sjá í albúminu hér að neðan. Hægt er að sjá myndirnar stærri með því að smella á þær.


Tengdar fréttir

Umfjöllun og viðtöl: KR - Þór Þorl. 82-79 | KR komið í 1-0

Joshua Brown skoraði þriggja stiga körfu í blálokin og tryggði KR þriggja stiga sigur á Þór frá Þorlákshöfn í fyrstu viðureign liðanna í undanúrslitum Iceland Express-deildar karla í körfubolta. Leikurinn var jafn frá upphafi til enda og þurfti stórkostlega körfu frá Brown til að skilja liðin að.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×